ágúst
31
2010
Roundtable ísland hefur opnað nýjan og glæsilegan vef www.roundtable.is Ég skora á alla að kíkja þangað inn og jafnvel senda inn efni.
Samhliða þessari breytingu fá allir klúbbar pláss á þessum vef, og munum við í RT7 færa okkar síðu, sem við notum fyrir klúbbastarfið þangað. nýja slóðin er http://rt7.roundtable.is
Vefinn okkar http://www.rt7.is munum við nota fyrir evrópufundinn á Akureyri 2011
ágúst
14
2010
Kæru félagar Roundtable 7. Nú er komið að okkar árlegu Haustferð sem verður þann 4.September. Félagar eru beðnir um að mæta á planið vestan við kristjáns Bakarí eigi síðar en kl 9:00 að morgni 4.Sept. Þar mun ykkar Formaður bjóða uppá kaffi og meðlæti,áður en haldið verður af stað á vit RT ævintýra.
Félagar skulu vera klæddir til útiveru,gott væri að hafa með sér vatnsheldan skófatnað,auk sundfatnaðar,þar sem klárleg verðu farið í pottinn þegar líður á daginn,eins og RT-mönnum sæmir. Þeir sem ætla að sofa eitthvað skulu hafa svepnpoka meðferðis.
Gert er ráð fyrir að vera komnir til Akureyrar upp úr hádegi,þann 5.Sept.
Við erum Roundtable menn og okkur langar að djamma svoldið núna…
Stjórnin.
júní
09
2010
Jæja nú er komið að sumarútileigunni góði í vaglasógi helgina 18-20 júní
Þar verður mikið húllumhæ meðal annars hoppukstali fyrir börnin veislutjald fyrir þá fullornu, hamborgaraveisla á föstudagskvöldinu, léttur hádegismatur á laugardag og sameiginlegt grill á laugardagskvöld og hellingur um að vera fyrir börnin.
Föstudagur 18. júní18:00 Mætum sprækir saman með konu og börnog snæðum hamborgara í boði Sigga og Ella,drekkum gosdrykki í boði Ölgerðarinnar..
19:00 Afslöppun, jafnvel sungið og átt góða kvöldstundundir teppi með kakó og Stroh envonandi er einhver góður með gítarinn til íslaginn
Laugardagur 19. júní11:30 Léttur hádegsiverður
14:00 Leikir fyrir alla jaft konur sem karla
18:00 Hver grillar sinn mat en meðlæti er á staðnum(sósa, salat og kartöflusalat) Grill verðaá staðnum..
Sunnudagur 20. Júní Brottför
Skráning er á grenivellir30@simnet.is Erlingur eða í síma 895-1010
feb.
03
2010
Þá er komið að “gamblinu”
við ætlum að hittast á Car - X eina alvöru réttinga og sprautuverkstæði landsins klukkan 20:00. Núna mætum við allir sem einn og spilum upp á veglegann fyrsta vinning..
kk. Haffi
des.
04
2009
Sælir. Smá svona, af því að það eru að koma jól. Þá er um að gera að rækta jólaandan og hjálpa náunganum

nóv.
25
2009
Sælir félagar. Nú er það lög og regla. Nú mæta allir stundvíslega kl. 20:00, á hótel kea, mánudaginn 30. nóvember.
Kv
Elli og Tryggvi
p.s
Heimanám fyrir þennan fund er að læra skattalögin utanbókar. Niðurstöður prófa verða sendar til Dómsmálaráðherra.
nóv.
14
2009
1. Mæting á Hótel KEA - Fundur settur kl. 20.00.
2. Fyrri umræður.
3. Veitingar.
4. Seinni umræður.
5. Stjórnarmál.
6. Fundið slitið. Ykkur verður skipt í tvö framboð, þið þurfið að setja fram og rökstyðja færar leiðir til að loka 150 milljarða fjárlagahalla á Íslandi næstu þrjú árin miðað við núverandi aðstæður og sannfæra atkvæðin tvö um að kjósa ykkur.Leggið nú höfuðin í bleyti um helgina og leysum vanda Íslands.
Garðar og Villi
nóv.
01
2009
Smellið á lincinn til að skoða auglýsinguna.
herrakvold.pdf
Allir herrar klúbbsins verða sóttir heim til sín rétt fyrir
klukkan 20.00 Mánudaginn 2. Nóv og skilað heim eftir fund.
Hafið með ykkur sundskýlu og handklæði.
Vinsamlegast tilkynnið forföll í síma 8641568 (Guðbjörg) sis1@simnet.is
eða í síma 8200932 (Gunnhildur) gunnhildur@blomak.is
Guðbjörg og Gunnhildur