Safn - september, 2007

sept. 27 2007

Vefslóð

Ég breytti upphafssíðunni á http://www.roundtable.is/rt7 þannig að hún hoppar beint inn á þessa síðu. Mér finnst við ættum endilega að nota þá vefslóð út á við, þar sem auðveldara er að muna hana og hún er varanlegri - þannig verður auðvelt að flytja vefinn ef og þegar þess gerist þörf.

2 ummæli

sept. 27 2007

Pokerfundur

Skrifað af bali - Fundaboð

Fundarboð um Pokerfund nr. 415 . Mæting niður á hotel KEA kl. 20.00 Á mánudagskvoldið . Menn þurfa að mæta í bond gallanum :) og það hefur alltaf verið sterkur leikur að vera með sólgleraugu í poker svo andstæðingurinn geti ekki lesið mann.  En við ætlum að spreyta okkur í texas hold´em. og einhverjir ætla sennilega  ALL -IN. Sjáumst hressir á kea og ekki gleyma poker face-inu 

Umsjón. Bali og nýliði.

Ein ummæli

sept. 26 2007

Fulltrúaráðsfundur

Skrifað af Sævar Sverrisson - Almennt

Sævar og Haffi hafa skráð sig á fulltrúaráðsfund á Húsavík.
Eru ekki allir 7u menn að drífa sig ?

Engin ummæli

sept. 25 2007

Húsavík

Skrifað af bali - Almennt

Sælir drengir nú styttisrt í húsavík og við verðum að vera duglegir að mæta á þennan fund hvort sem það er að vera þarna helgina eða bara fundinn. Það væri gott að þið hugsuðuð þetta næstu daga og menn mundu svo rotta sig saman kanski í bíla á næsta fundi.

Og endilega vera vakandi fyrir auglýsingum í félagatalið og hafa samband við mig.

Ég vill skáka þessum stjórnarmönnum á fulltrúaráðsfundinum og vera klár með þetta.

Kveðja: Jón Baldvin Árnason
Formaður RT-7
bali56@btnet.is

Ein ummæli

sept. 22 2007

Pókerkvöld

Skrifað af bikki - Almennt

Hvað segja menn um pókerkvöldið? Er ekki stemming fyrir þessu. Ég reyndar hef ekki prófað þetta ennþá en er spenntur að spreyta mig.

Er búið að ákveða hvar á að vera????

2 ummæli

sept. 22 2007

Nokkrar athugasemdir

Í fyrsta lagi: Strákar, til hamingju, loksins er eitthvað að gerast. Bölvaðir aumingjar sem hafa verið að sjá um þetta hingað til ;)

Ég hef þó tvær athugasemdir.

Í fyrst lagi væri þægilegt  að sjá auðveldar hvort maður sé loggaður inn og þá hver er loggaður inn. Við fyrstu sýn munaði engu nema Innskráning breyttist í Útskráning eða eitthvað svoleiðis.

Í öðru lagi mætti maður hoppa hingað inn þegar maður opnar http://www.roundtable.is/rt7 - en það skal ég laga.

2 ummæli

sept. 22 2007

Ný heimasíða

Skrifað af bali - Almennt

Þetta er allveg frábært að vera komnir með heimasíðu heir heir Tryggvi

Engin ummæli

sept. 21 2007

Glæsileg heimasíða hjá Tryggva

Skrifað af bikki - Almennt

Þá er að verða komið að því að við förum að brúka nýja heimasíðu, tilhamingju sjöukallar.

Ein ummæli

sept. 21 2007

Fulltrúaráðsfundur 2 - Húsavík

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Fulltrúaráðsfundur 2

Jæja drengir hverjir ætla að mæta?

Engin ummæli

sept. 20 2007

Heimasíða að komast í gagnið

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Sælir félagar - nú er ný heimasíða óðum að taka á sig mynd. Líklega verður hún ekki fullbúinn strax en þetta er samt byrjun.

Í fyrsta lagi er þetta ekki endanleg vefslóð síðunnar. Ég setti hana þarna upp á rt7.kaldiklubburinn.com því það var auðveldast fyrir mig - og það var um að gera að fara auðveldustu leiðina miðað við hvað verkefnið var farið að dragast.

Það sem á eftir að gera núna eru nokkrir hlutir:

  • Íslenska afganginn á síðunni
  • Úfæra betri forsíðmynd - þessari var bara tjaslað saman á 10 sek
  • Búa til aðgang handa öllum félögum RT7
  • Útfæra félagatalið betur
  • Yfirfara texta ‘UmRt7′
  • Laga tenglasafnið sem birtist í leiðinlegri og ólógískri röð (á að vera auðvelt en handavinna)
  • Færa inn gamlar myndir á myndasíðuna
  • Kenna RT7 mönnum á kerfið
  • Laga útlit síðunnar, hugsanlega liti og leturgerðir.

Ég þygg alla ykkar aðstoð við verkið - og endilega komið með athugasemdir - getið skilið þær eftir hérna sem ‘ummæli’ við þessa færslu. Síðan verður í stöðugri þróun og verður vonandi lifandi þáttur í starfi RT7 um ókomna framtíð.

Ein ummæli