Safn - október, 2007

okt. 31 2007

Villifundur

Skrifað af bali - Almennt

Sælir drengir og takk fyrir síðasta fund sem að mínu mati var allveg stórkostlegur. Og þakka ég Guðmundi og Tryggva mikið fyrir. En þá er það næsta verkefni og það er villifundurinn og vill ég minna menn á það þá leggja allir hönd á plóginn og það væri rosalega gott að menn færu að líta í kringum sig með hráefni hið fyrsta og láta mig vita hverju menn geta reddað. Fyrir þá sem muna það ekki að þá færðum við villifundinn frá 10 Nóv til 17 Nóv.

 Kveðja; Bali formaður.

2 ummæli

okt. 27 2007

Fundarboð - Hreyfimyndafundur

Skrifað af Tryggvi Már - Fundaboð

Mæting stundvíslega mánudaginn 29. október klukkan 19:30 fyrir utan Borgarbíó á Akureyri. Þeir sem koma of seint geta ekki tekið þátt í dagskránni. Eins verður mjög erfitt að yfirgefa fundinn mikið fyrir kl: 22.30 svo að þeir sem þess þurfa eru vinsamlegast beðnir um að láta annað hvort mig (Tryggva Má) eða Guðmund Velti vita sem fyrst.

Þetta verður virkilega skemmtilegur fundur og nú skulum við líka fjölmenna!

Sjáumst á mánudaginn!

Ég ítreka - klukkan 19:30

Engin ummæli

okt. 15 2007

Breyting á villifundi

Skrifað af bali - Almennt

Sælir drengir þar sem ég hef minnst á það að ég geti ekki verið með á villifundi 10 nóv næstkomandi þá er ég með tillögu um að færa þann fund til 17 nóv

 Kveðja: Bali Formaður.

3 ummæli

okt. 14 2007

Euromeeting 2008

Skrifað af Sævar Sverrisson - Almennt

Euromeeting 2008 Í Steyr Austurríki

Nú eru rúmir sex mánuðir til stefnu og því ættu menn fara að skipuleggja ferð sína til Steyr í Austurríki svo annað þurfi ekki að vera í vegi. Mótsgjald í dag er kr. 25420 og flug ca. 31000 þús.
Koma svo strákar nú drífum við okkur.

Sævar Ingi Sverrisson siðameistari RT-7

www.rt7.at/euromeeting

Engin ummæli

okt. 10 2007

Auglýsingar

Skrifað af bali - Almennt

Sælir drengir það er verið að herja mikið á mér vegna auglýsinga og ætla ég að biðja ykkur að græja það sem þið eruð með í pípunum hið snarasta og hafa samband við mig.

Hinsvegar almenningur sem skoðar, ef einhver vill styrkja klúbbinn  okkar og auglýsa hafið þá samband við mig 

Jón Baldvin formaður rt7    bali56@btnet.is

Engin ummæli

okt. 10 2007

Fundarboð Old7

Skrifað af bikki - Almennt

Mæting mánudaginn 15. okt í Eimskipshúsinu í húsakynnum Skeljungs. Þetta er Old7 fundur og er því ólíkur venjulegum fundum. Sýnum styrk og mætum. Spennandi dagskrá tekur við þegar líður á kvöldið.

Birkir og Sibbi.

Ein ummæli

okt. 09 2007

Fundur 415 - P ó k e r fundur á KEA

Skrifað af bali - Fundagerðir

Mæting var á hótel kea kl.20:00 og spilaður var t e x a s h o l d e m p ó k e r - og fannst mönnum það afar skemmtilegt. Þar af voru þrír sem höfðu aldrei spilað þetta áður .

Síðan var inntaka á tveimur nýjum félögum þeim Viðari Sigþórssini og Guðmundi Fannari

Mæting: Brynjar, Mummi, Bali, Sævar, Birkir, Haffi, Siggi, Og nýliðarnir Viddi og Gummi

Síðan kom Tryggvi með gest frá Hollandi.

Engin ummæli

okt. 08 2007

Missti vald á fjórhjóli og slasaðist

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Umferðarslys varð á Suðurstrandarvegi í Leggjabrjótshrauni rétt austan við Ísólfsskála rét eftir klukkan 19 í gær. Þar missti ökumaður fjórhjóls vald á hjóli sínu, sem hafnaði utan vegar.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Þar kom í ljós að hann var tvíbrotinn á vinstri fæti og brotinn á hægri hendi.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1295624 

Þetta kennir okkur að fara varlega !

Ein ummæli

okt. 04 2007

Old7 fundur 15. okt

Skrifað af bikki - Almennt

Ég vil kvetja menn að taka frá mánudagskvöldið 15. okt þar sem old7 fundurinn verður haldinn. Þetta verður afar spennandi fundur sem vert er að mæta á. Strákar takið kvöldið frá, tökum stemmngskvöld með gömlu hundunum.

Engin ummæli