Safn - desember, 2007

des. 21 2007

Gleðileg Jól!

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Rt7 Jólasveinninn í góðum gír (mynd frá systur félagi okkar í Finnlandi)

Um leið og ég óska ykkur Gleðilegra Jóla og þakka fyrir allt gamalt og gott á árinu sem nú er að líða - þá langar mig að segja ykkur að mig hlakkar gríðarlega til öflugs Rt7 starf á komandi ári. Sjáumst hressir í sveitaferð!

(Öhhhh… m.ö.o. … þetta merkir að þið fáið ekkert jólakort frá mér þetta árið :))

Engin ummæli

des. 10 2007

Fundur nr. 421 - Dansinn í Bjarginu

Skrifað af Tryggvi Már - Fundagerðir

Mættir voru: Brynjar, Mummi, Garðar, Hafþór, Bali, Elli, Tryggvi, Sibbi, Sævar, Bikki, Viðar

Fundur var settur klukkan 20:15 í húsakynnum Bjargsins. Margir mættu og seint vegna villandi leiðbeininga fundarhaldara og tók smá tíma að safna mannskapnum saman á réttan stað. Eftir fundarsetningu var haldið í sal einn þar sem dömurnar biðu okkar “öllum” að óvörum ásamt danskennara. Flestir virtust vera liðtækir dansarar og sumir voru jafnvel liðtækari en aðrir (nefni engin nöfn nema kannski Hafþór og Brynjar).

Eftir að hafa lært fáein spor og snúið stúlkunum nokkra hringi á dansgólfinu var danskennslunni slúttað, dömurnar sendar heim en drengirnir niður á KEA. Þar var sest inn í einn af hliðarsölum staðarins og við tók piparkökuskreyting undir dyggri leiðsögn Vailu hans Sigga. Menn voru misflinkir við að föndra liti á piparkökurnar, sumir skreyttu “gróft” aðrir fínna. Þó svo að engin verðlaun hafi verið gefin fyrir flinkustu skreytinguna þá má segja að Sævar eigi mest hrós skilið. Ekki bara skreytti hann piparkökujólatré með afburða árangri heldur skreytti hann Bikka líka (reyndar skreytti Bikki Sævar einnig í mótmælaskyni). Hér að neðan má sjá myndband ad piparkökutrénu hans Sævars.

Fundi slitið klukkan 22:45.

3 ummæli

des. 10 2007

Flash Dance

Skrifað af Haffi - Almennt

Jæja ágætu félagar, vonandi fóru menn ekki ílla út úr dansmeðferðinni því nú stefnum við að dansnámskeiði strax á nýju ári. Mér heyrðist að flestir væru þegar komnir í dansskóna því langar mig að biðja ykkur að skrifa ummæli hér strax á eftir en nóg er a skrifa nafn undir þetta og ég mun skrá viðkomandi á námskeið hjá henni Önnu Breyðfjörð. ATH Við ætlum að taka konur.. :) með okkur.

8 ummæli

des. 06 2007

Fundarboð fundur nr. 421 - 10. des. 2007

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Mæting stundvíslega kl. 20:10 í kjallara líkamsræktarstöðvarinnar Bjargs. Gengið inn að austan.
Mikið verður gaman að föndra saman!

Brynjar og Haffi

2 ummæli

des. 05 2007

Vefstjóri - ritari - ljósmyndari …

Skrifað af Tryggvi Már - Almennt

Hefur ekki verið að vinna vinnu sína sem skyldu síðustu vikur… er fyrstur til þess að játa það. Mun gera mitt besta næstu vikur til þess að laga til í óreiðunni og koma skikki á hlutina, þ.e.a.s. koma fundargerðum og myndum inn á vefinn og laga hann eftir ábendingum.

Engin ummæli