jan. 22 2008
Fundur 423 (Vín og matur) - Fundargerð
Fundur settur klukkarnm 20:00
Mættir voru: Tryggvi, Gummi, Mummi, Haffi, Sævar, Brynjar, Siggi, Garðar, Bali og Viðar (ekki man ég nöfn þeirra RT5-manna en ef þið hafið þau á takteinunum endilega bætið þeim við!)
Ágætis mæting á sameiginlega fund RT5 og RT7 sem var haldinn á Furuvöllum í kvöld. Byrjað var á bjórsmökkun og kynningu í boði ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Boðið var upp á fjórar tegundir mjaðar sem hver og einn átti að smakka, reyna að geta hvaða tegund væri hvað og raða í einkunnarröð. Það er skemmst frá því að segja að Brynjar var sá eini sem gat rétt upp á öllum bjórtegundunum og vann sér með því inn kassa af bjór frá ölgerðinni. Hér eftir titlaður Brynjar Alki, enda var þessi þraut full erfið okkur hinum “góðtemplurunum” sem þekkjum vart mun á Guinnes og Maltextrakt.
Ekki var maturinn heldur af lakari kantinum. Boðið var upp á 12 mismunandi rétti tilreidda af Konna RT5-manni, hver öðrum betri. Reyktur lundi, hrefnukjöt, maríneraður silungur, gæsabringur, tvíreykt hangiket, bambi, reykt lamb og ég veit ekki hvað. Kærar þakkir fyrir það Konni! Þar sem ég sat fékk gæsin hæstu einkun enda einstaklega ljúffeng.
Fundinn heiðruðu einnig með nærveru sinni þeir sunnlendingar Engilbert Imsland (varaforseti RTÍ) og Sveinn Andri Sveinsson (IRO). Mikilvægi þeirra má best sjá af því að þeir voru varla stignir upp í flugvélina á leiðinni norður þegar punteraði á borgarstjórninni með tilheyrandi upplausn í Sódómu.
Sjálfur fór ég snemma af fundi svo ég bið aðra um að leggja orð í belg (eða fundargerð).
p.s. eftir að p*ó?’k“#4e—r kvöldið var auglýst á vefsíðunni þá hefur rignt yfir okkur tilboð frá hinum ýmsu spilavítum í formi athugasemda. Ég mun reyna að ráðast á vandann og finna lausn á honum um leið og ég kem heim frá Austurríki í byrjun næsta mánaðar. Þangað til geta þeir einir birt athugasemd sem hafa skrifað athugasemdir á síðuna áður.
p.s.2 ótrúleg tímasetning og tilviljun á brandaranum um hrefnukjötið - er enn forviða yfir þessu :p
p.s.3. Athugið að ný könnun hefur verið sett á vefinn!
Lifið heilir!
ritari