Safn - nóvember, 2008

nóv. 29 2008

Fundarboð 436-Hreyfiorkufundur

  • Mánudaginn 1. desember
  • Mæting stundvíslega kl: 19:20 í KA heimilið.
  • Komið með íþróttaföt, sundföt og góða skapið.
  • Þið eigið að svitna.

 

Engin ummæli

nóv. 12 2008

Konukvöld

Sælir félagar.

Næsta laugardag (15. nóv) ætlum við að vera góðir við konurnar okkar.

Dagskráin verður í stuttu máli þannig, að við ætlum að bjóða þeim í dekur meðan við svitnum í eldhúsinu og síðan verður etið og drukkið um kvöldið. Maturinn verður hjá Garðari formanni í Álfabyggð 18 og verður Indland þema eldhússins þetta kvöld.

Dagurinn hefst hjá okkur köllunum um klukkan fjögur. Þá ætlum við að hittast heima hjá Garðari og byrja að elda.

Kvöldið hefst örlitlu síðar hjá konunum. Þær verða sóttar um hálf fimm leytið og þeim ekið í dekur. Þegar maturinn verður tilbúinn, um hálf-sjö til sjö leytið, verða þær sóttar í dekrið og þeim komið heim til Garðars. Allt hráefni og áhöld til eldunar verða á staðnum, aðeins þarf að koma með brennandi áhuga og ein-beittan vilja.

Kvöldinu lýkur svo þegar allt er búið.

Sjáumst sprækir,

Stjórnin.

Viðbætur: Konur, farið verður á snyrtistofu og dekrað vel við ykkur, þannig að ykkur er óhætt að mæta “náttúrulegar” í dekrið :)

Engin ummæli