Safn - mars, 2009

mars 03 2009

Fundur 441 Keiluáskorun á Akureyri

Skrifað af Tryggvi Már - Fundaboð, Almennt

Jæja drengir, nú er komið að því!

Næstkomandi föstudagskvöld, 6. mars verður haldin keiluáskorun í Keilunni, Hafnarstræti 26 Akureyri. Til keppni eru boðaðir allir félagar í RT4, RT5 & RT7 og er mæting klukkan 20:00. Dagskráin er þannig að fyrst munum við taka nokkra keppnir í keilunni og keppa okkar á milli. Þarna er ágætis bar líka svo enginn ætti að verða þurrbrjósta.Þegar keilunni er lokið verður haldið á Cafe Amour við ráðhústorgið þar sem við höfum fengið efri hæðina til afnota.

Þetta verður gaman … þetta verður gríðarlega gaman!

Kveðja
Siggi & Tryggvi Már

Engin ummæli