Hin árlega útilega norðanklúbba var haldin í Vaglaskógi um helgina, nánar í Systragili sem er mjög skemmtilegt og vel útfært tjaldstæði. All nokkur hópur var samankominn á föstudeginum og fleiri búnir að boða komu sína á laugardeginum , bæði til að gista og hinir taka þátt í þessum frábæra fjölskyldudegi okkar hér fyrir norðan.
Þessi útilega er stækkandi núna með hverju sumrinu sem líður og er alveg stórkostlegt að sjá hve menn eru að standa sig með þessa útlegu. Að vísu hefði ég verið til í að hitta einhverja frá Húsavík og fleiri frá Egilsstöðum og Fjarðarbyggð en þeir koma bara tvíefldir á næsta ári. Við prófuðum áður að færa útileguna til en greinilegt er að best er að halda sig við Vaglaskóginn því þá hafa þeir sem ekki gista gott tækifæri til að vera með.
Þegar mín familía mættu á svæðið ásamt litla hundinum okkar honum Ella, þá var þegar búið að setja upp hoppukastala, trampólín og stórt samkomutjald með hitasvepp til að halda öllum heitum. Fírað var upp í grillinu og steiktu menn hammara með öllu og var nóg fyrir alla og rúmlega það. Greinilegt að menn höfðu verið duglegir að afla styrkja fyrir útileguna því þetta var 100% frítt fyrir okkur gestina ,einungis þurftum við að greiða fyrir dvölina á tjaldsvæðinu sjálfu.
Jæja spjallað var langt fram eftir nóttu og börnin nutu sín í öllum leiktækjunum sem voru í boði. Voru allir þakklátir skipuleggjendum að hafa tekið hita sveppinn því nóttin var köld og hélaði á gras, það gerist víst nokkuð oft þarna í norðanátt og heiðskíru. Við yluðum okkur við það að spáin var mjög góð fyrir helgina.
Laugardagurinn rann upp bjartur og hlýr, greinilegt að spáin var að standast, hitastigið fór fljótt í 16 stig. Brátt fór fór enn meira af félögum og fjölskyldum þeirra að streyma á svæðið . Fjöldinn var um 50-60 manns. Aftur var smellt hömmurum á grillið og enn ein veislan fór í gang. Þá var nammikastarinn tekinn fram. Hann er hugmynd RT-7 og hefur ávallt verið skemmtilegur fyrir börnin og ekki síst fyrir foreldrana sem fá að sjá hvað býr í börnum sínum. Börnin henda bolta og reyna að hitta í litla plötu framan á kastaranum og þá losnar um valslöngu sem kastar namminu með látum yfir krakkana. Mjög skemmtilegt.
Óskar varaformaður í RT-5 sauð saman leikjum sem allir tóku þátt í og reyndu á jafnvægi og styrk þátttakenda. Þá var aftur fírað upp í grillinu og nú kom fólk með sitt eigið kjöt en meðlætið var allt í boði klúbbanna. Hjalti fimma tók upp gítarinn og var lagið tekið í tjaldinu svo undirtók á tjaldstæðinu ;o) Þegar fór að líða á kvöldið fór það fólk að hafa sig heim sem ekki ætlaði að gista og fækkaði talsvert á svæðinu en jammið hélt áfram fram á nótt.
Sunnudagurinn rann svo upp með 20 stiga hita og sól, flestir voru búnir að taka saman um hádegisbilið nema þeir ofur þunnu (undirritaður) og lauk þar með þessari frábæru útilegu. Tveir gestir voru með okkur , þeir Dóri í RT-13 og Þórhallur í RT-9. Hér eru þakkarorð hans til allra sem voru þarna og lögðu sig fram:
„Sælir félagar
Ég vil þakka mikið fyrir afskaplega velheppnaða sumarútilegu. Hún var Akureyrarklúbbunum til mikils sóma. Mætti ég í Vaglaskóg (Systragil) með talsverðar væntingar og stóðust þær allar og rúmlega það. Skipulagning, afþreying og veitingar voru til fyrirmyndar. Var veitt það vel að ég kom heim nánast með það sama og ég lagði upp með í tveim kæliboxum. Afþreying fyrir börnin var mikil og skemmtilegir leikir.
Nú vil ég félagar góðir þakka fyrir mig og mína fjölskyldu frábæra helgi og í leiðinni að skora á RT-félaga, sérstaklega RT-4, RT-9 og RT16 að mæta að ári.
Kveðja frá Egilsstöðum
Þórhallur Harðarson og fjölskylda, RT-9“
Sömuleiðis takk Þórhallur og einnig takk til skipuleggjenda útilegunnar og til ykkar sem komu og áttu frábæra stund í skóginum.
Bestu kveðjur,
Jói Eiríks útilegukall og siðameistari RT-5
Hér eru fleiri myndir og hægt að skrifa athugasemdir við þær.