Safn - september, 2009

sept. 21 2009

Formannsparty 2009

Skrifað af Haddur - Almennt

untitled-1-copy.jpg 

KÆRU TEIBLARAR!
 
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 26. SEPTEMBER 2009 VERÐUR FYRSTA SAMEIGINLEGA FORMANNSPARTÝ RT5 OG RT7 HALDIÐ.
PARTÝIÐ FER FRAM Í LIONSSALNUM SKIPAGÖTU 14 – FJÓRÐU HÆÐ.
HÚSIÐ OPNAR KL: 19:30 OG DASKRÁ HEFST KL: 20:00.
BOÐIÐ VERÐUR UPP Á LÉTTAN KVÖLDVERÐ, GOSDRYKKI, BJÓR OG GOSBJÓR EN ÞEIR SEM VILJA DREKKA LÉTTVÍN MEÐ MATNUM KOMA MEÐ ÞAÐ SJÁLFIR.
HÚSINU VERÐUR LOKAÐ KL: 24:00
VIÐ VONUMST TIL AÐ SJÁ ÞIG OG MAKA ÞINN!
EIGUM SKEMMTILEGT KVÖLD SAMAN J
BESTU KVEÐJUR
KONNI FORMAÐUR RT5 OG SIGGI VARAFORMAÐUR RT7

P.S. ÞEMA KVÖLDSINS ER HÖFUÐFAT

Engin ummæli

sept. 20 2009

Fundarboð Fundur 447 Kynningarfundur

Skrifað af Haddur - Fundaboð, Almennt

Kynningarfundur með Nýliðum verður haldinn á Hótel KEA Mánudaginn 21. september kl. 20
Nú ríður á að sýna sparihliðina útávið og gott væri ef menn myndu nú renna með greiðunni í gegnum lubban og taka stutt deit við tannburstan.
Stjórnin.

Engin ummæli

sept. 14 2009

Aukafundur

Skrifað af Haffi - Almennt

Sælir félagar..

Nú ætlum við að halda stuttan fund og verður hann haldinn að þessu sinni í húsin félagsmanna KKA (Kappakstur Klúbbur Akureyrar) en það er til húsa í efri krúsum (rétt neðan við skotsvæðið).. komið ylla klæddir þ.e.a.s. ekki snyrtilegir heldur í göllum til aksturs drullumallara.. mæting 19:30 stundvíslega

 kk. Haffi

Ein ummæli

sept. 10 2009

Óskilamunur

Skrifað af Haddur - Almennt

img00045.jpg

Þessar undurfögru naríur urðu viðskila við eiganda sinn á Bakkaflöt.  Innsta herbergi til vinstri.
Eigandi þeirra getur nálgast þær hjá gjaldkera, ella verða þær settar á uppboð og seldar hæstbjóðanda.  Gjaldkeri áskilur sér rétt til að taka öllum tilboðum.  Ágóði af sölunni mun skrást á ársreikning RT7 sem “aðrar tekjur”.  Ef ekkert viðunandi tilboð berst, verða þær afhentar munaverði til varðveislu.
Nánari lýsing: JBS, Small, 84%Polyester, 16% Elastan.  Innihald bannað innan 16.

3 ummæli