Safn - janúar, 2010

jan. 18 2010

Fundarboð Fundur 456 - Frjálst +3 mín 25.jan 2010

Skrifað af Haddur - Fundaboð

Mæting á Hótel KEA stundvíslega kl 20:00.  Fyrirlesari verður einn sá allra fremsti, í sínu fagi.
Einnig munum við taka inn nýjan, fjallmyndalegan og stæltan  félaga.  Mikilvægt er að mæting verði góð, þar sem gera má ráð fyrir að bera þurfi kvikindið burt.
3 mín verða teknar, ef veður leyfir. 

Lifið heil. Garðar og Haddur

Engin ummæli

jan. 06 2010

Fundur 455 - Steikin burt

Skrifað af Haffi - Fundaboð

Sælir félagar, nú er komið að fyrsta fundi nýs árs. Við tökumst í senn á við andlega deyfð og líkamlegt afhroð sem eru beinar afleiðingar jólanna. Mæting er stundvíslega klukkan 20 fyrir utan hús Gránufélagsins (einnig þekkt sem Vélsmiðjan, svona ef menn eru enn vankaðir eftir jólin). Komið vel klæddir til útivistar,. Eftir að skoða málið nánar komumst við að sjálfsögðu að því að hvorki marinering í heitum potti né sprikl í köldum lindum er hollt fyrir heilsuna og því megið þið gleyma fyrri leiðbeiningum um sundskýlur og tilheyrandi. Við biðjumst afsökunar á fyrri skilaboðum þar að lútandi.

 

Nýárskveðjur,

Mummi og Brynjar.

huge_25_126999.jpg

Ein ummæli