sept. 20 2007
Um Roundtable 7
Round Table félagskapurinn
Round Table er félagsskapur ungra manna úr ýmsum starfsgreinum. Félagar funda tvisvar í mánuði á veturna. Lagt er upp með að fundir séu fjölbreyttir, skemmtilegir og fræðandi. Félagar kynnast mörgum hliðum á mannlífi Akureyrar, t.d. með fyrirtækjaheimsóknum, fyrirlesurum og skemmtanahaldi. Við erum með regluleg samskipti við aðra klúbba á landinu og sláum þá gjarnan á létta strengi. Roundtable er alþjóðafélagsskapur og þess vegna hittum við aðra RT-menn á Evrópumótum og alþjóðamótum.
Einkunnarorð Round Table eru: Tileinka, Aðhæfa, Bæta.
Round Table 7
Við erum að jafnaði 15-20 í klúbbnum og höldum 19 fundi í vetur. Það er okkur mikilvægt að komast úr erli hversdagsins og hitta okkar góðu vini í klúbbnum. Sannir RT-félagar geta vart beðið eftir næsta fundi.Tveir til þrír félagar sjá um undirbúning funda og hafa þeir frjálsar hendur hvað undirbúning varðar, þ.a. hugmyndarflugið fær að njóta sín. RT er og verður karlaklúbbur, en í starfi okkar höfum við jafnan lagt ríka áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar.
Siða og starfsreglur Round Table 7 Akureyri
Markmið siða og starfsreglna.
1. Skerpir á aðferðafræði við endurtekna viðburði klúbbstarfsins.
2. Leiðbeinandi fyrir klúbbmeðlimi, stjórn og siðameistara, klúbbnum til heilla.
Meðferð siða og starfsreglna.
1. Aðeins er hægt að breyta reglum á aðalfundum klúbbs.
2. Meirihluta viðstaddra þarf til að gera breytingar og skal kjósa með handauppréttingu.
3. Með umsjón siða og starfsreglna fer siðameistari klúbbs.
Siðareglur/starfsreglur.
1. Ávalt skal setja og slíta fundi af formanni, varaformanni eða þeim sem umboð hefur.
2. Dregið skal í happadrætti eigi síðar en 20. Jan ár hvert. Sá á einn rétt á að vera með sem er starfandi löggiltur félagi. Hafa verið löggiltur félagi í minnsta 1 ár fyrir úrdrátt happadrættis. Hafa ekki unnið í happadrætti síðastliðin 2 starfsár. Ef happadrættisvinningur er ekki nýttur skal honum dreift á alla sem fara út á euromeeting á næsta ári, þar með talið þeim sem fékk happdrættisvinning þess árs.
3. Tillaga að nyjum félaga skal ávalt berast formanni Útbreiðslunefndar og skal hann láta kjósa um tillöguna á næsta fundi í leynilegri kosningu.
4. Varaformaður hverju sinni sér til þess að nýr meðlimur fái staðlaða kynningu um klúbbstarfið, landsstarfið og alþjóðastarf, á reynslutíma.
5. Fundarboð skal án undantekninga berast ½ viku fyrir fund. Og hefur siðameistari óskorað vald til sekta sé því ekki sinnt.
6. Embættaskipti skulu fara fram aðkvöldi Aðalfundar B. hverju sinni.