jan.
18
2010
Mæting á Hótel KEA stundvíslega kl 20:00. Fyrirlesari verður einn sá allra fremsti, í sínu fagi.
Einnig munum við taka inn nýjan, fjallmyndalegan og stæltan félaga. Mikilvægt er að mæting verði góð, þar sem gera má ráð fyrir að bera þurfi kvikindið burt.
3 mín verða teknar, ef veður leyfir.
Lifið heil. Garðar og Haddur
jan.
06
2010
Sælir félagar, nú er komið að fyrsta fundi nýs árs. Við tökumst í senn á við andlega deyfð og líkamlegt afhroð sem eru beinar afleiðingar jólanna. Mæting er stundvíslega klukkan 20 fyrir utan hús Gránufélagsins (einnig þekkt sem Vélsmiðjan, svona ef menn eru enn vankaðir eftir jólin). Komið vel klæddir til útivistar,. Eftir að skoða málið nánar komumst við að sjálfsögðu að því að hvorki marinering í heitum potti né sprikl í köldum lindum er hollt fyrir heilsuna og því megið þið gleyma fyrri leiðbeiningum um sundskýlur og tilheyrandi. Við biðjumst afsökunar á fyrri skilaboðum þar að lútandi.
Nýárskveðjur,
Mummi og Brynjar.

des.
04
2009
Sælir. Smá svona, af því að það eru að koma jól. Þá er um að gera að rækta jólaandan og hjálpa náunganum

nóv.
25
2009
Sælir félagar. Nú er það lög og regla. Nú mæta allir stundvíslega kl. 20:00, á hótel kea, mánudaginn 30. nóvember.
Kv
Elli og Tryggvi
p.s
Heimanám fyrir þennan fund er að læra skattalögin utanbókar. Niðurstöður prófa verða sendar til Dómsmálaráðherra.
nóv.
14
2009
1. Mæting á Hótel KEA - Fundur settur kl. 20.00.
2. Fyrri umræður.
3. Veitingar.
4. Seinni umræður.
5. Stjórnarmál.
6. Fundið slitið. Ykkur verður skipt í tvö framboð, þið þurfið að setja fram og rökstyðja færar leiðir til að loka 150 milljarða fjárlagahalla á Íslandi næstu þrjú árin miðað við núverandi aðstæður og sannfæra atkvæðin tvö um að kjósa ykkur.Leggið nú höfuðin í bleyti um helgina og leysum vanda Íslands.
Garðar og Villi
nóv.
01
2009
Smellið á lincinn til að skoða auglýsinguna.
herrakvold.pdf
Allir herrar klúbbsins verða sóttir heim til sín rétt fyrir
klukkan 20.00 Mánudaginn 2. Nóv og skilað heim eftir fund.
Hafið með ykkur sundskýlu og handklæði.
Vinsamlegast tilkynnið forföll í síma 8641568 (Guðbjörg) sis1@simnet.is
eða í síma 8200932 (Gunnhildur) gunnhildur@blomak.is
Guðbjörg og Gunnhildur
okt.
26
2009
Boðað er til spilakvölds RT-7 þann 30. okt.
Mæting kl. 20.30 Föstudaginn 30 okt.
1. Spilað verður á allt að 5 borðum félagsvist að hætti RT manna.
2. Muna eftir að taka konur með.
3. Veglegir vinningar.
4. Léttar veitingar
Sævar og Haffi
okt.
14
2009
Sælir félagar þá er komið að næsta fundi. Mánudaginn 19. okt.
Mæting á Hótel KEA kl 20:00
Þar sem við ætlum að skoða vélar og tæki þá væri mjög gott að taka veskið með ef menn verða áhugasamir.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
KV
Nikki og Gummi
okt.
14
2009
Jæja kæru félagar, Þá er að koma að næsta fundi og ætlum við að hittast á Hótel KEA yfir öli og fyrirlestri um Guangdong héraði í suður Kína.Endilega munið að draga með ykkur nýliðana þið sem báruð þá upp.
Mæting er kl. 20:00..kk. Haffi